3.4 C
Selfoss

Missti meðvitund við göngu í Reykjadal

Vinsælast

Síðdegis í gær barst björgunarsveitum í Ölfusi beiðni um aðstoð vegna ferðalangs sem gengið hafði inn í Reykjadal. Á leið út úr dalnum fór ferðalangnum að líða illa og upplifa máttleysi og missti hann í kjölfarið meðvitund, eða var með skerta meðvitund.

Björgunarsveitir fóru upp gönguleiðina frá Hveragerði, sem og að aka upp á Hellisheiði, inn heiðina og ganga niður í Reykjadal þaðan. Um 40 mínútum eftir að útkall barst, eða um 17:40, voru björgunarsveitir komnar að viðkomandi sem hlaut aðhlynningu og var svo fluttur niður í sjúkrabíl.

Random Image

Nýjar fréttir