0.5 C
Selfoss

Verkföll samþykkt í Árborg, Hveragerði og Ölfusi

Vinsælast

Yfirgnæfandi meirihluti félaga BSRB í Árborg, Ölfusi, Hveragerði og þremur öðrum sveitarfélögum samþykkti boðun verkfalls í atkvæðagreiðslum sem lauk fyrir helgi. Verkfallsboðun þessi nær til starfsfólks leik- og grunnskóla, frístundaheimila, mötuneyta og hafna í sveitarfélögunum.

Í Árborg samþykktu 87,69% verkfallsboðun,  90,91% í Ölfusi og 91,55% í Hveragerði. Þátttaka var mjög góð í öllum sveitarfélögum eða frá 72 til 90%.

„Félagsfólk okkar virðist hafa verið löngu tilbúið í verkföll, fólk ætlar ekki að láta þetta misrétti yfir sig ganga ofan á allt og er tilbúið til að leggja niður störf til að knýja fram réttláta niðurstöðu“ sagði Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, um kosninguna. „Sveitarfélögin hafa þó enn tækifæri til að sjá að sér og koma til móts við starfsfólk sitt en hingað til hefur samningsviljinn verið enginn,“ sagði Sonja.

Yfir 1500 BSRB félagar leggja því að óbreyttu niður störf í maí og júní hjá tíu sveitarfélögum. Gangi ekki að semja verður gripið til enn frekari aðgerða. Ljóst er að verkföllin munu hafa veruleg áhrif á leik- og grunnskóla, frístundarmiðstöðvar og hafnarstarfsemi.

Random Image

Nýjar fréttir