11.7 C
Selfoss

Lýst yfir óvissustigi vegna jarðskjálfta í Mýrdalsjökli

Vinsælast

Ríkislögreglustjóri ásamt Lögreglustjóranum á Suðurlandi lýsir yfir óvissustigi vegna jarðskjálfta í Mýrdalsjökli. Jarðskjálftahrina hófst kl. 09:41 norðaustarlega í öskju Kötlu og mældust þrír skjálftar yfir 4 að stærð.

Þetta eru óvenju stórir jarðskjálftar og því rétt að fylgjast vel með framvindunni og hvort annað fylgi í kjölfarið. Hvorki hefur þó mælst gosórói né hlaupórói.

Lögreglan á Suðurlandi hefur í ljósi þessa ákveðið að loka veginum inn að Kötlujökli.

Í kringum Kötlu er mælanet sem samanstendur m.a. annars af jarðskjálfta-, aflögunar- og vatnamælum. Þessir mælar eru vaktaðir allan sólarhringinn af náttúruvársérfræðingum Veðurstofunnar og gefnar út tilkynningar ef snöggar breytingar verða á þeim sem mætti túlka sem skammtímafyrirboða að eldgosi eða jökulhlaupi, t.d. órói á jarðskjálftamælum. Engin slíkur órói sést á mælum núna. Ekki er hægt fullyrða neitt um það hvernig þróunin virkninnar verður og fylgist náttúruvárvöktun Veðurstofunnar áfram náið með málum. Nánar má lesa um eldstöðina Kötlu í Íslensku eldfjallavefsjánni en þar er t.d. fjallað sérstaklega um hegðun milli gosa og fyrirboða eldgosa, bæði til lengri og skemmri tíma.

Almannavarnir leggja áherslu á að fólk þekki til viðbúnaðar og viðbragðs vegna náttúruhamfara til að draga úr áhrifum eins og unnt er. Sjá nánari upplýsingar á vefsíðu Almannavarna: https://www.almannavarnir.is/natturuva/eldgos/vidbunadur/

Eins og komið hefur fram hjá Veðurstofu Íslands hefur enginn gosórói mælst og engar vísbendingar um að hlaup sé hafið undan jöklinum. Ekki er þó talið ráðlagt að vera við rætur Kötlujökuls vegna mögulegs gasútstreymis og hlaupavatns í farvegi Múlakvíslar.

Að öðru leyti á þessi jarðskjálftahrina ekki að raska daglegu lífi fólks.

Nýjar fréttir