-0.5 C
Selfoss

Hlífðarhjálmar til allra 7 ára barna á Íslandi

Vinsælast

Hjálmarnir hafa breyst talsvert frá því í fyrstu og nýtast nú við fjölbreyttari tómstundaiðkun en áður. Auk þess sem stór flötur hjálmsins virkar sem endurskinsmerki. Hjálmarnir henta mjög vel fyrir börnin hvort sem þau eru á hjóli, hjólaskautum eða hjólabretti.

Búrfell á Selfossi

Þetta forvarnarstarf  hófst hjá Kiwanisklúbbnum Kaldbak  á Akureyri 1991. Við í Kiwanisklúbbnum Búrfelli á Selfossi tókum þetta verkefni að okkur árið 1997 og höfum haft umsjón með því á okkar félagssvæði síðan, í 27 ár.

Ómetanlegt framlag Eimskips í 20 ár

Fyrstu 7 árin öfluðum við fjár til þessa verkefnis hjá tryggingafélögunum auk framlags úr félagssjóði klúbbsins. Samstarf við Eimskip hófst 2004. Frá þeim tíma hefur Eimskip kostað verkefnið bæði innkaup og flutninga til landsins og dreifingu heim til skólanna.

Síðustu 20 árin hefur þetta forvarnarstarf náð til allra 7 ára barna á landinu. Þar sem kiwanisklúbbar eru starfandi, annast þeir þar afhendingu á hjálmunum. Það er ávallt mikið fagnaðarefni að fá tækifæri að afhenda brosandi börnum þetta sjálfsagða öryggistæki. Það er erfitt að réttlæta þá andhverfu einstakra skólayfirvalda á höfuðborgarsvæðinu að þetta framtak Eimskips í öryggismálum barna megi ekki njóta eðlilegrar kynningar og afhending hjálmanna sé óheimil innan veggja skólanna.

Foreldrum mikill fengur er
sú farsæld hverju sinni,
ef hjólandi barnið hjálminn ber
á höfði í umferðinni.

Ljósmynd: Aðsend.

Óskabörnin okkar

Þetta er óskaverkefni okkar allra. Í upphafi var Eimskipafélag Íslands „óskabarn þjóðarinnar“ en nú hefur Eimskip í samvinnu við Kiwanishreyfinguna gert þetta verkefni að „óskabarni“ sínu.  Öll 7 ára börnin eru „óskabörnin okkar“ Eimskips, trausta átakið í okkar slysavörnum.

Með vænsta hjálma verkefnið
er veitist landsins börnum.

Hjörtur Þórarinsson,
félagi í Kiwanisklúbbnum Búrfelli

Nýjar fréttir