-0.9 C
Selfoss

Bókmenntahátíðin „Máttugar meyjar“

Vinsælast

Bókmenntahátíðin Máttugar meyjar verður haldin á Eyrarbakka 15.-23. apríl í tilefni af 10 ára afmæli Konubókastofu. Hátíðin er fjölbreytt og haldin á ýmsum menningarstöðum í bænum.

Fimmtudagur 20. apríl

Handavinnustund í Konubókastofa, Eyrarbakki – kl. 16:00

Gestir eru hvattir til að sinna sinni handavinnu á meðan hlustað er á höfundana Elísabetu Steinunni Jóhannsdóttur Sörensen og Ragnheiði Lárusdóttur sem lesa úr verkum sínum. Þá mun Anna Kristín Hannesdóttir lesa úr þýðingu sinni á verkunum Hinstu blíðuhót og Augnablik í eilífðinni eftir Kjersti Anfinnsen.

Laugardagur 22. apríl

Ritsmiðja fyrir börn í Skrúfunni, Eyrarbakki – kl. 14:00

Linda Ólafsdóttir teiknari, málari  og rithöfundur stýrir ritsmiðju fyrir börn.

Fjölskyldu jóga í Gömlu kartöflugeymslunni, Eyrarbakki – kl. 16:00

Fjölskyldujóga í umsjón Evu Daggar Atladóttur í Gömlu kartöflugeymslunni. Eva Dögg Atladóttir hefur lært hatha yoga úti á Indlandi í Sivananda Yoga Centre en Swami Sivananda var læknir sem kenndi helstu yoga stöðurnar til að hafa fullkomna heilsu. Eva Dögg ætlar að kenna þessar stöður og fræða okkur um þær, jafnframt því að kynna nokkrar yoga bækur og fá nemendur efni úr þeim. Djúp slökun og möntrusöngur í lokin.

Konukvöld í Rauða Húsinu, Eyrarbakki | “Leyndardómur yndisþokkans” – kl. 19:30

Á Konukvöldinu verður höfðað til yngri kvenna með ýmsum hætti. Sæbjörg Eva Hlynsdóttir sér um tónlistaratriði. Spunahópurinn Eldklárar og eftirsóttar treður upp og kynnir meðal annars væntanlega ljóðabók sína. Heiða Vigdís Sigfúsdóttir les úr bók sinni Getnaði.

Hallgerður Freyja Þorvaldsdóttir mun lesa upp úr bók sem var skrifuð til að kenna ungum konum að koma fram og fleira. Eva Katrín kynnir Eva´s Breath og ýmislegt fleira.

Miðasala er á tix.is og eru fordrykkur, gjafapoki og léttar veitingar innifalin í miðaverði.

Sunnudagur 23. apríl

Hannah Kent og afmælihátíðin í Rauða Húsinu, Eyrarbakki – kl. 14:00

Gestum er boðið til samtals við rithöfundana Hönnuh Kent og Þórunni Valdimarsdóttur í Rauða Húsinu. Fjallað verður um verk þeirra í opnu samtali, sameiginlega snertifleti og opnað fyrir spurningar úr sal. Viðburðurinn er hluti af Bókmenntahátíð í Reykjavík.

Þá mun sagnfræðingurinn Dalrún Kaldakvísl fjalla um doktorsrannsókn sína á ráðskonum í sveit á síðari hluta 20. aldar. Meginheimildir rannsóknarinnar eru viðtöl sem Dalrún tók við 41 fyrrum ráðskonu. Í erindi sínu beinir hún sjónum að félagslegri stöðu ráðskvenna í sveit, með því að reifa ýmsa þætti sem einkenndu stöðu ráðskvenna, bæði áður en þær réðu sig til starfa sem ráðskonur sem og á meðan ráðskonuvist þeirra stóð. Það hefur hallað mikið á konur í Íslandssögunni og því hefur Dalrún sérstaklega beitt sér fyrir því að taka sagnfræðiviðtöl sem hverfast um líf kvenna. Að lokum verður gestum boðið til afmælisveislu með veglegum veitingum.

Listaverk Heru Fjord verður í Rauða Húsinu laugardag og sunnudag.

Uppbyggingarstjóður Suðurlands styrkir hátíðina.

Random Image

Nýjar fréttir