8.4 C
Selfoss

Héraðsþing HSK á Hellu tókst vel

Vinsælast

Um 110 manns mættu á héraðsþing HSK sem haldið var á Hellu fimmtudaginn 23. mars sl. Líkt og undanfarin var þingið haldið seinnipart dags í miðri viku og hefur það gefist vel.

Stjórn HSK lagði fram 12 tillögur og voru þær allar samþykktar. Þinggerð er væntanleg frá ritunum og verður hún birt á vef HSK á næstu dögum.

Engar breytingar urðu á stjórn sambandsins, en allir stjórnar- og varastjórnarmenn gáfu kost á sér áfram.

Val á íþróttamanni og íþróttakonu HSK var kunngjört á þinginu. Kylfingurinn Heiðrún Anna Hlynsdóttir úr Golfklúbbi Selfoss og júdómaðurinn Egill Blöndal úr Umf. Selfoss voru útnefnd íþróttafólk ársins 2022 hjá HSK.

Fimm einstaklingar aðildarfélaga HSK voru heiðraðir á þinginu. Þröstur Guðnason, formaður Umf. Ingólfs í Holtum, var sæmdur gullmerki og hann hlaut einnig starfsmerki UMFÍ. ÍSÍ sæmdi hjónin Katrínu Aðalbjörnsdóttur og Óskar Pálsson úr Golfklúbbnum Hellu gullmerki ÍSÍ og Gestur Einarsson, sem á sæti í varastjórn HSK var sæmdur silfurmerki ÍSÍ. Þá var Bjarni Jóhannsson úr Golfklúbbnum Hellu sæmdur starfsmerki UMFÍ.

HSK veitti nokkur sérverðlaun á þinginu, líkt og undanfarin ár. Körfuknattleiksfélag Selfoss hlaut unglingabikar HSK, Hestamannafélagið Geysir fékk foreldrastarfsbikarinn og þá var Garðar Garðarsson valinn öðlingur ársins.

Löng hefð er fyrir því að útnefnda matmann þingsins og halda sleifarkeppni sem nokkrir þingfulltrúar taka þátt í. Guðmundur Karl Sigurdórsson vann sleifarkeppnina og Jóhanna Bríet Helgadóttir var valin matmaður þingsins.

Myndskreytt ársskýrsla kom út á þinginu og má sjá vefútgáfu skýrslunnar á www.hsk.is.

HSK

Nýjar fréttir