7.8 C
Selfoss

Drengurinn, fjöllin og Húsið

Vinsælast

Ásgrímur Jónsson listmálari í Húsinu á Eyrarbakka

Páskasýningin Drengurinn, fjöllin og Húsið sem  fjallar um æsku og unglingsár Ásgríms Jónssonar listmálara verður opnuð í borðstofu Hússins á Eyrarbakka laugardaginn 1. apríl kl. 15.00.  Ásgrímur var fæddur og uppalinn í Suðurkoti í Rútsstaðahverfi í Flóa. Æskustöðvar hans höfðu djúp áhrif á hann, hinn víðfeðmi fjallahringur, ljós og skuggar árstíðanna, útilegumannasögur á vökunni og hljóðið í briminu eru aðeins örfá atriði sem fylgdu honum ævina á enda og voru brunnur endurminninga sem hann gat sífellt sótt í. Í Húsinu á Eyrarbakka var Ásgrímur vikapiltur um tíma. Heimilisfólkið sá þann efnivið sem í piltinum var og þar eignaðist hann sína fyrstu vatnsliti. Þaðan fór hann fullviss um að hann ætlaði að verða málari.

Sýningin er hluti af afmælisþríleik Byggðasafns Árnesinga og Listasafns Árnesinga sem er unnin í samstarfi við Listasafn Íslands. Þríleikurinn samanstendur af sýningunni Drengurinn, fjöllin og Húsið í Byggðasafni Árnesinga í Húsinu á Eyrarbakka, sýningunni Hornsteinn á Listasafni Árnesinga í Hveragerði og Ásgrímsleiðinni sem er rekur sig um söguslóðir Ásgríms með viðkomu á sýningum safnanna.

Byggðasafnið fagnar á árinu 70 ára afmæli og Listasafn Árnesinga fagnar 60 ára afmæli. Arfleifð Ásgríms listmálara, sveitadrengsins úr Árnessýslu finnst í báðum söfnum. Upplýsingar um sýningarnar og Ásgrímsleiðina verður hægt að nálgast á heimasíðum safnanna og samfélagsmiðlum.

Verið velkomin á sýningaropnun í Húsinu á Eyrabakka. Páskaopnun Byggðasafn Árnesinga verður sem hér segir: 1. apríl – 10. apríl opið alla daga kl. 13.00 – 17.00 og þess utan er opið um helgar í apríl á sama tíma kl. 13.00 – 17.00.

Byggðasafn Árnesinga

Nýjar fréttir