7.8 C
Selfoss

Grískur kjúklingur með Tzatziki sósu og fersku salati

Vinsælast

Ingi Rafn Ingibergsson er sunnlenski matgæðingur vikunnar

Vill byrja á að koma fram þökkum á fagurkerann Björn Sigurbjörnsson fyrir þessa frábæra tilnefningu. Ég hef verið meira í því að mæta heim þegar maturinn er tilbúinn síðustu árin, en nú þegar ég hef lagt tuðrusparkið mestmegnis á hilluna hefur gefist meiri tími í eldamennskuna. Ég er ekki með marga rétti í bókinni en eftirfarandi kjúklingaréttur er í miklu uppáhaldi

Grískur kjúklingur með Tzatziki sósu og fersku salati

1 kg úrbeinuð kjúklingalæri
1 msk. hvítvínsedik
3 stk. hvítlauksrif
12 stk. safi úr hálfri sítrónu
1 msk. ólífuolía
4 msk. grísk jógúrt frá Gott í matinn
12 msk. óreganó
1 tsk. paprikukrydd
1 tsk. kóríanderkrydd
1 tsk. salt
1 tsk. pipar

Tzatziki sósa

350 g grísk jógúrt frá Gott í matinn
2 msk. sítrónusafi
1 msk. ólífuolía
2 stk. hvítlauksrif
12 stk. gúrka, rifin
salt og pipar eftir smekk

Salat

3 stk. tómatar
12 stk. gúrka
1 stk. avocado
12 stk. rauðlaukur
steinselja eftir smekk
salt og pipar eftir smekk

 

 Kjúklingur

Setjið gríska jógúrt í skál ásamt hvítlauk, hvítvínsediki, sítrónusafa, ólífuolíu og kryddi.Blandið öllu vel saman og hellið yfir kjúklinginn.
Hrærið marineringunni vel saman við kjúklinginn og geymið í kæli.

Gott er að leyfa kjúklingnum að marinerast í nokkrar klukkustundir og jafnvel yfir nótt.

Steikið kjúklinginn á pönnu eða grillið.
Raðið kjúkling, sósu og salati á tortillakökurnar en gott er að steikja tortillurnar upp úr smá smjöri eða olíu á pönnu og bera þær fram heitar.

Tzatziki sósa

Blandið grískri jógúrt, sítrónusafa, ólífuolíu, hvítlauk, salti og pipar og hrærið vel saman. Rífið niður gúrku í aðra skál með rifjárni, setjið í eldhúsrúllubréf, helst þrefalt og vindið safann úr. Blandið rifinni gúrku saman við jógúrtblönduna og hrærið vel saman.

Salat

Skerið salatið smátt niður og blandið saman í skál og berið fram með kjúklingnum.

Mig langar að skora á pizzaprinsinn og áhugamannakokkinn Gunnar Borgþórsson til að draga fram uppskriftabókina og sýna sitt rétta andlit

Nýjar fréttir