6.1 C
Selfoss

The Nightfly – Bestu lög Steely Dan á Sviðinu 10. mars

Vinsælast

Reykjavík Tribute Orchestra stígur á Sviðið á Selfossi þann 10. mars nk og flytur lög Steely Dan. Steely Dan var ein áhrifamesta hljómsveit áttunda áratugarins. Tónlistin var einstök og frumleg blanda af djass- og popptónlist sem heillaði tónlistaráhugamenn og ekki síður tónlistarmenn á öllum aldri og hefur gert æ síðan. Donald Fagen og Walter Becker stofnuðu hljómsveitina í byrjun áttunda áratugarins og sendu frá sér frábærar plötur sem skipa sér margar hverjar á stall með bestu plötum áratugarins. Donald Fagen gaf svo út hina stórkostlegu sólóplötu The Nightfly árið 1982 sem er því orðin fertug og er án nokkurs vafa með betri plötum níunda áratugarins.

Í september árið 2022, rættist langþráður draumur þeirra íslensku tónlistarmanna sem stigu þá á svið Bæjarbíós og fluttu tónlist Steely Dan fyrir troðfullu húsi. Leikurinn var endurtekinn í nóvember og aftur varð uppselt. Hópurinn ákvað því að stíga næsta skref og flytja The Nightfly í heild sinni ásamt bestu lögum Steely Dan á hinum flunkunýja tónleikastað Sviðinu, Selfossi þann 10. mars næstkomandi.

Tónleikagestir mega búast við að heyra lög eins og Do It Again, Reelin’ In The Years, Rikki Don’t Lose That Number, Kid Charlemagne, Peg, Josie, Babylon Sisters, Hey Nineteen auk allra laganna á The Nightfly.

Reykjavík Tribute Orchestra skipa:

Eiður Arnarsson – bassi, Friðrik Karlsson – gítar, Íris Lind Verudóttir – söngur og bakraddir, Ívar Guðmundsson – trompet, Jóel Pálsson – saxófónn, Jóhann Hjörleifsson – trommur, Karl Olgeirsson – hljómborð og söngur, Pétur Valgarð Pétursson – gítar, Phil Doyle – saxófónn, Stefanía Svavarsdóttir – bakraddir, Þórir Úlfarsson – hljómborð og bakraddir.

Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 þann 10.mars og miðasala er hafin á tix.is

Nýjar fréttir