0.3 C
Selfoss

Suðurlandsmót í skák

Vinsælast

Suðurlandsmót grunnskóla í sveitakeppni fór fram á Flúðum fyrr í mánuðinum. Alls mættu 26 sveitir til leiks frá 10 grunnskólum á Suðurlandi. 13 sveitir kepptu í flokki 1.-7.bekkjar og aðrar 13 í 8.-10. bekk. 4 taflmenn skipa hverja sveit og því voru rétt rúmlega 100 nemendur á mótinu. Ekki hafa svo margir sent skáksveitir áður í mótið og greinilegt að skákíþróttin er í góðri uppsveiflu um þessar mundir.

Skáksamband Íslands sá um framkvæmd mótsins með aðstoð Flúðaskóla. Kepptar voru 7 umferðir samkvæmt Monrad kerfinu. Mótið gekk hratt og vel fyrir sig en aðeins 1 stutt kaffipása var gerð á mótinu þar sem Flúðaskóli bauð upp á kaffivetingar.

Mikil spenna var í mótinu enda margir góðir skákmenn undir sama þaki. Úrslit fóru þó svo að lokum að í yngri flokki vann Vallaskóli sigur en í þeim eldri var það a-sveit Flúðaskóla sem hrósaði sigri.

Sigurlið Flúðaskóla í eldri flokki ásamt Aldísi Hafsteinsdóttur sveitastjóra í Hrunamannahreppi sem sá um að afhenda verðlaun að loknu móti. Sveitina skipuðu þeir Þorsteinni Ingi Styrmisson, Eiríkur Logi Vilhjálmsson, Sigurður Emil Pálsson og Dawid Jaroslaw Bucik.
Random Image

Nýjar fréttir