-1.6 C
Selfoss

Innkalla hampolíu með THC yfir leyfilegum hámarksgildum

Vinsælast

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Muna hampolíu sem Icepharma flytur inn vegna þess að það greindist THC (tetrahydrocannabinol) yfir leyfilegum hámarksgildum. THC er aðskotaefni í matvælum. Matvæli sem innihalda THC yfir hámarksgildum geta verið heilsuspillandi. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit í Reykjavík innkallað vöruna af markaði.

Matvælastofnun fékk fyrst upplýsingar um innköllunina í gegnum evrópska viðvörunarkerfið RASFF um hættuleg matvæli og fóður á markaði.

Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu:

Vörumerki: Muna
Vöruheiti: Hampolía
Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: 30.01.2023
Strikamerki: 5694230036981
Lotunúmer: Q581
Nettómagn: 250 ml
Framleiðandi: IFTEA s.r.l.
Framleiðsluland: Ítalía
Innflytjandi: Icepharma, Lynghálsi 13, 110 Reykjavík.

Dreifing: Krónan, Nettó, Fjarðarkaup, Hagkaup, Kjörbúðin, Iceland, Melabúðin, Heimkaup, Brauðhúsið, H verslun, Hjá Jóhönnu og Lyfjaver.

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki, farga eða skila henni í verslun þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.

Um virkni THC af vef Landlæknis:

„Virkasta efnið í Kannabis er nefnt Delta-g- tetrahydrocannabinol, skammstafað THC. Vísindamenn hafa greint tvær tegundir af taugafrumu-viðtökum sem kannabis binst í líkamanum, og nefnt þá CB1 og CB2. CB1 finnst aðallega í heilanum.

Þegar THC tengist þessum viðtökum hefur það áhrif á mörg mismunandi taugaboð heilans. Eitt af áhrifunum er að taugaboðefnið dópamín dælist út í vellíðunarkerfi heilans. Dópamínið veitir vellíðunartilfinningu sem er stór þáttur við þróun fíknar. Kannabisvíman eykur einnig skynjunaráhrif.

Vellíðunarkerfið er langt frá því að vera eina svæðið í heilanum sem verður fyrir áhrifum af kannabis. Svæði í fremri hluta heilans eru viðkvæm vímuáhrifum kannabis en þau stjórna starfsemi eins og greiningu, ákvarðanatöku og stjórnun á eigin hegðun. Víma takmarkar þannig eðlilega heilastarfsemi og ósjálfráð viðbrögð. Skert heilastarfsemi svo sem skert hugsun lýsir sér sem einbeitingarörðugleikar, lélegt minni og minnkuð námsgeta.“

Random Image

Nýjar fréttir