2.8 C
Selfoss

Fræðsla um hinseginleikann

Vinsælast

Í tilefni hinseginviku Árborgar 2023 ætlar Hugrún Vignisdóttir sálfræðingur að vera með fræðslu um hinseginleikann. Hugrún hefur verið starfandi sálfræðingur í áratug og starfar á Zen Sálfræðistofu

Hún hefur unnið bæði í skólakerfinu hér á Suðurlandi sem og í meðferðarvinnu. Hennar sérhæfing liggur meðal annars í málefnum trans barna og fjölskyldna þeirra.

Í fyrirlestrinum verður farið yfir hugtök hinseginleikans, hvernig við sjáum fyrir okkur kyn og hvers vegna, hvernig kynjatvíhyggjan hefur áhrif á staðalmyndir, kynhneigðir, kunvitun, kyntjáningu og svo margt fleira.

Fyrirlesturinn verður á TEAMS í kvöld, þriðjudaginn 17. janúar, og hefst klukkan 20:30. Opið verður fyrir spurningar sem Hugrún mun svara í lokin.

Nýjar fréttir