8.4 C
Selfoss

Samningur fjögurra sveitarfélaga við HMF Jökul

Vinsælast

Sveitarfélögin fjögur í Uppsveitum Árnessýslu, Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur undirrituðu í dag samstarfssamning við Hestamannafélagið Jökul. Tilgangur samningsins er m.a. að efla samstarf sveitarfélaganna og Hmf. Jökuls, tryggja öflugt íþrótta- og æskulýðsstarf fyrir börn og unglinga og efla starf félagsins. Áhersla er á fagmennsku og þekkingu í starfi félagsins og forvarnir með fræðslu til iðkenda og starfsmanna um skaðsemi vímuefna, einelti, kynbundið áreiti, kynferðislegt áreiti eða ofbeldi. Í samningnum, sem gildir út árið 2026, er kveðið á um árlegan fjárhagslegan stuðning sveitarfélaganna við félagið. Á myndinni, sem var tekin í reiðhöllinni á Flúðum, eru forsvarsmenn sveitarfélaganna og forsvarsmenn Hmf. Jökuls.

Nýjar fréttir