11.7 C
Selfoss

Leita rúmlega tvítugs manns við Suðurströnd

Vinsælast

Lögreglan á Suðurlandi hefur síðan um 17:00 í gær leitað að rúmlega tvítugum karlmanni að beiðni aðstandenda hans í Árnessýslu. Björgunarsveitir voru síðan kallaðar út til aðstoðar við leit um kl. 19:20 og um kl. 22:00 fann björgunarsveitarfólk bifreið mannsins yfirgefna í Þykkvabæjarfjöru.

Leitað var með drónum, gangandi og með sporhundum á nokkuð stóru svæði í kring um bílinn og á svæðinu milli Þjórsár og Hólsár inn til landsins ásamt fjöruleit beggja vegna við það svæði. Þá aðstoðaði þyrla Landhelgisgæslu við leitina en varð frá að hverfa vegna bilunar áður en leit lauk en henni var hætt um kl. 02:00 í nótt.

Leit hófst á ný í birtingu í morgun og stefnt er að því að leita fjörur frá Þorlákshöfn austur eftir Suðurströndinni a.m.k. að ósum Markafljóts en einnig verður svæðið milli Þjórsár og Hólsár upp að bæjum í Þykkvabæ leitað sérstaklega.

Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi eru aðstæður til leitar góðar vegna þess að jörð er frosin þannig að vart markar í eftir tæki leitarmanna og því hægt að sinna leitinni á fjórhjólum, bílum eða buggy bílum. Þá hefur verið leitað á stóru svæði og verður í dag með drónum björgunarsveitanna.

Nýjar fréttir