8.4 C
Selfoss

Hamarshöllin endurbyggð á nýju ári

Vinsælast

Bæjarstjórn Hveragerðis samþykkti að setja 1. áfanga nýrrar Hamarshallar í alútboð á fundi sem haldinn var þann 8. desember sl. Hefur Geir Sveinsson bæjarstjóri, ásamt meirihluta Okkar Hveragerðis og Framsóknar, starfsfólki bæjarins, hönnunerteymi frá Alark og Mannviti unnið hörðum höndum við að útfæra framtíðarsýn í uppbyggingu íþróttamannvirkja Hveragerðisbæjar. Hefur vinnan tekið mið af þarfagreiningu hönnunarhópsins sem skilaði tillögum sínum í haust og telja þau mikilvægt að stíga næstu skref í uppbyggingu Hamarshallarinnar með það fyrir augum að skapa samkeppnishæfan húsakost fyrir allar íþróttir til framtíðar á sem hagkvæmastan máta.

Fyrsti áfangi í uppbyggingu nýrrar Hamarshallar er ný yfirbygging reist á steyptum grunni eldri Hamarshallar, dúkveggur settur upp til að afmarka fótboltahús frá óinnréttaðri fjölnota íþróttaaðstöðu og þjónusturýmum innan nýju yfirbyggingarinnar og nýtt anddyri reist og fullbúið við norðurhlið Hamarshallarinnar. Stefnt er að því að alútboð verði auglýst á næstu dögum, tilboð opnuð í lok janúar og samningur undirritaður mánuði síðar. Markmiðið er að fótboltasalur verði afhentur í september 2023 til notkunar og áfangi eitt verði fullbúinn í byrjun desember 2023. Með samþykki bæjarstjórnar á útboði fyrsta áfanga Hamarshallarinnar í þessari útfærslu er stigið skref í átt að uppbyggingu framtíðarhúsnæðis fyrir íþróttahreyfinguna í Hveragerði með samkeppnishæfri æfinga- og keppnisaðstöðu

Í öðrum áfanga, sem lagt er til að útboðsleiðir hafi verið ákveðnar fyrir áður en verklok 1. áfanga eiga sér stað, er stefnt að því að innrétta og ganga frá fjölnota íþróttaaðstöðu og þjónusturýmum Hamarshallarinnar, m.a. með því að leggja gólfefni, setja upp veggi og loft þjónusturýma á tveim hæðum auk stiga og lyftu. Síðari áfangar í uppbyggingu Hamarshallarinnar verða byggðir upp eftir því hvernig íbúafjölgun og byggð þróast í bæjarfélaginu á næstu árum.

Nýjar fréttir