6.7 C
Selfoss

Gæsahúð og tárvot augu í Skálholti

Vinsælast

Í síðustu viku hélt kór Menntaskólans að Laugarvatni sína árlegu jólatónleika í Skálholtskirkju. Haldnir voru þrennir tónleikar og var fullt út úr dyrum á þeim öllum. Mikil eftirvænting var fyrir tónleikunum, bæði hjá áhorfendum og meðlimum kórsins og þá sérstaklega því þetta eru fyrstu jólatónleikar kórsins með áhorfendum síðan jólin 2019. Kórfélagar sáu um að kynna öll atriði kvöldsins þar sem boðið var upp á fjölbreytt lagaval, íslensk og erlend jólalög í bland og má þar nefna Klukknanna köll, Það snjóar, Happy X-mas, Little Drummer Boy og Dansaðu vindur. Eins var kórnum skipt upp í smærri einingar þar sem stelpur, strákar og bekkir tóku lög saman. 1. bekkur stóð sig með prýði á sínum fyrstu stórtónleikum.

Kórinn er svo sannarlega fullur af hæfileikaríkum hljóðfæraleikurum auk söngvara. Margrét Inga Ágústsdóttir spilaði á píanó og slagverk, Arnar Högni Arnarsson og Axel Ýmir Grönli spiluðu á bassa, Jade Jóhanna Mcdevitt og Ívar Dagur Bryndísarson Sævarsson spiluðu á gítar og Sólveig Lilja Guðjónsdóttir á slagverk. Þess má einnig geta að kórfélagar kynntu öll atriði kvöldsins. Eyrún Jónasdóttir kórstjóri á heiður skilið fyrir vel unnin störf og einnig er vert að minnast á kórstjórnina sem stóð sig virkilega vel í tengslum við allt skipulag og miðasölu. Í kórstjórn sitja Helga Mjöll Sigurðardóttir formaður, meðstjórnendurnir Emilía Sara Kristjánsdóttir og Hrafntinna Jónsdóttir, María Sif Rossel Indriðadóttir gjaldkeri og Hekla Dís Sigurðardóttir ritari.

Óhætt er að segja að tónleikarnir hafi heppnast afar vel og mátti heyra gesti tala um gæsahúð og tárvot augu eftir fallegan flutning sem blaðamaður getur sannarlega tekið undir og má gera ráð fyrir því að margir gestir hafi komist í jólaskap við áheyrn þessara fallegu radda.

Nýjar fréttir