7.3 C
Selfoss
Home Fréttir Hamars-lagið er komið út!

Hamars-lagið er komið út!

0
Hamars-lagið er komið út!


Í tilefni af 30 ára afmæli Hamars ákváðu nokkrir aðilar í Hveragerði að vinna að því að útbúa og gefa Íþróttafélaginu Hamri stuðningsmannalag sem væri hægt að nota í öllu starfi félagsins til að efla andann og samvinnu.

Lagið var afhent og gefið félaginu í nafni styrktaraðila sem stóðu á bak við verkefnið, Dvalarheimilið Ás, Kjörís og Hallgrímur Óskarsson.

Flytjendur Hamars-lagsins eru: Magnús Kjartan Eyjólfsson og Unnur Birna Björnsdóttir ásamt Karlakór Hveragerðis og Kirkjukór Hveragerðiskirkju

Höfundur lags: Hallgrímur Óskarsson
Höfundar texta: Stefán Hilmarsson og Hallgrímur Óskarsson

Hallgrímur Óskarsson lagahöfundur afhendir formanni Hamars lagið f.h. þeirra sem stóðu að baki þessari gjöf. Mynd: aðsend.