8.4 C
Selfoss

Farsælt samstarf Landsbankans og Frjálsíþr.deildar Umf. Selfoss heldur áfram

Vinsælast

Á dögunum var skrifað undir áframhaldandi samstarf Landsbankans á Selfossi og Frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss og verður Landsbankinn því áfram einn af aðalsamstarfsaðilum Brúarhlaupsins á Selfossi og deildarinnar. Landsbankinn og Frjálsíþróttadeildin hafa um árabil átt mjög gott samstarf. Með samstarfinu vill Landsbankinn sýna í verki áhuga sinn og stuðning við forvarna-, æskulýðs- og íþróttamál.

Landsbankinn stóð á árum áður fyrir sérstöku Landsbankahlaupi og naut þar aðstoðar frjálsíþróttadeildarinnar við framkvæmd þess.  Landsbankahlaupið var fyrst haldið á 100 ára afmæli bankans árið 1986 og var árlegur viðburður þar til  Brúarhlaup Selfoss tók við á 100 ára afmæli Ölfusárbrúar árið 1991.  Því má segja að samstarf frjálsíþróttadeildarinnar og bankans  hafi snúist við þega bankinn fór að aðstoða Frjálsíþróttadeildina við framkvæmd hlaupsins en auk fjárstyrks hefur bankinn lagt fram húsnæði og starfsfólk.

Á myndinni eru fulltrúar Frjálsíþróttadeildarinnar, Helgi S Haraldsson og Hjalti Jón Kjartansson og fulltrúar Landsbankans, Helga Guðmundsdóttir og Nína Guðbjörg Pálsdóttir.

Nýjar fréttir