-1.5 C
Selfoss

Lögreglan leitar að manni sem áreitti unga stúlku á Selfossi

Vinsælast

Lögreglan á Suðurlandi óskar þess að ná tali af manni sem sagður er hafa gefið sig á tal við stúlkubarn á leið suður eftir göngustíg við Fosstún á Selfossi (milli Fosstúns og Þóristúns), til móts við hús nr. 8 upp úr kl. 17:00 í gær. Stúlkan segir manninn hafa gripið í hana og beðið að koma með sér. Hún hafi hins vegar slitið sig frá honum og haldið heimleiðis. Stúlkan er algerlega ómeidd en var nokkuð brugðið.

Stúlkan gaf, í samtali við lögreglu og fulltrúa barnaverndar, greinargóða lýsingu á manninum þar sem fram kom m.a. að hann hafi verið í svörtum buxum og dökkum jakka.

Mikilvægt þykir að upplýsa um málsatvik og eins og áður sagði óskar lögregla eftir að ná tali af viðkomandi manni og jafnframt að fá upplýsingar frá vegfarendum á þessari leið um manninn eða annað er máli kann að skipta búi einhver yfir þeim.

Hægt er að ná sambandi við lögregluna á Suðurlandi í síma 444-2000  eða með því að hringja í 112. Jafnframt má senda upplýsingar á netfangið sudurland@logreglan.is

Random Image

Nýjar fréttir