2.8 C
Selfoss

Fyrirmyndarfyrirtæki á Suðurlandi

Vinsælast

Viðskiptablaðið og Keldan hafa tekið saman lista yfir þau fyrirtæki sem standa upp úr á Íslandi og eru öðrum til fyrirmyndar í rekstri.

Til þess að komast á listann þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði. Fyrirtækin þurfa að hafa skilað ársreikningi fyrir rekstrarárin 2021 og 2020 en rekstrarárið 2019 er einnig notað til viðmiðunar. Þau þurfa að hafa skilað jákvæðri afkomu 2021 og 2020 og tekjurnar þurfa að hafa verið yfir 40 milljónir króna hvort ár. Ennfremur þurfa eignir fyrirtækjanna að hafa verið yfir 80 milljónir króna í lok áranna 2021 og 2020. Eiginfjárhlutfall fyrirtækja þarf að hafa verið yfir 20% í lok áranna, nema í tilviki bankanna.

Þessu til viðbótar er tekið tillit til annarra þátta, sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni. Að þessu sinni komast 1170 fyrirtæki á listann eða um 2,8% fyrirtækja landsins. Einnig var tekinn saman listi yfir opinber fyrirtæki og eru 34 fyrirtæki á honum, alls eru þetta því 1204 fyrirtæki.

Fyrirtæki á Suðurlandi sem komast á listann eru 78 (í úttekt Viðskiptablaðsins voru 10 fyrirtæki á Höfn talin með Austurlandi) sem er um 6,7% allra fyrirtækja á listanum. Eitt fyrirtæki á Suðurlandi er á listanum yfir opinber fyrirtæki. Þegar öll fyrirtæki eru talin saman koma 79 af 1204 fyrirtækjum af Suðurlandi eða 6,6%. Þegar landsbyggðin er skoðuð sérstaklega eru 79 af 352 fyrirtækjum á Suðurlandi eða 22,4%.

Það er athyglisvert að skoða hvar á Suðurlandi fyrirmyndarfyrirtækin eru skráð og að þessu sinni eru fyrirtæki frá 13 af 15 sveitarfélögum á Suðurlandi á listanum. Mesta fjölgun fyrirtækja á milli ára er á Höfn í Hornafirði en þeim fjölgar um 4 og í Grímsnes- og Grafningshreppi sem fjölgar um 3.

Nýjar fréttir