2.8 C
Selfoss

Garðyrkjumeistari sendir frá sér skáldsögu

Vinsælast

„Glaðlega leikur skugginn í sólskininu“ heitir nýútkomin skáldsaga eftir garðyrkjumeistarann og umhverfisfræðinginn Stein Kárason.

Á bókarkápu segir:

Ungur drengur vex upp í sjávarþorpi við fjörð sem fóstrar blómlegar sveitir. Nánd við sjó og sjómenn, bændur og búalið, mynda bakgrunn sögunnar. Leiksviðið er bærinn, gömul hús, fjaran, bryggjurnar, sveitin.Strákar leika sér og rækja skyldur sínar í heimi fullorðinna. Drengurinn hænir að sér dúfur. Hann forðar kettlingi frá dauða og verða með þeim miklir kærleikar, eða hvað …

Drengurinn sér eitt og annað sem aðrir skynja ekki. Það reynist honum þungt í skauti …
Ógeðfelldir atburðir gerast, viðkvæm atvik í lífi fólksins …
Mannlegur breyskleiki birtist í ýmsum myndum. Sannleikur þolir ekki alltaf dagsljósið … Hversu mikils virði eru þá háleit markmið og reisn?

Sagan gerist í skugga kalda stríðsins. Rússagrýlan og Kúbudeilan eru í hámarki og í fyrsta sinn í sögunni stendur mannkynið frammi fyrir tortímingu heimsins vegna kjarnorkusprengju.
Hlýr blær og glettni ríkja í sögunni þrátt fyrir skuggalegt baksvið.

Bókin er innbundin, 238 blaðsíður. Hlíf Una Bárudóttir teiknaði kápumyndina. Bókin er nú fáanleg í öllum helstu bókaverslunum og á www.steinn.is.
Glaðlega leikur skugginn í sólskininu er fullorðinsbók en aðal persónan er Glói 10-11 ára gamall drengur. Tíðarandalýsing áranna 1962-1964 og tónlist þess tíma litar söguna, sem og kalda stríðið, síld fyrir norðan land, gæftir til sjós og lands, pólitík og mannlífið í sinni fjölbreyttu mynd.

Steinn Kárason er mörgum kunnur fyrir fræðibækur sínar, tónlist og dagskrárgerð fyrir sjónvarp og útvarp. Hann var um nokkurra ára skeið stundakennari við Garðyrkjuskólann og starfaði sem garðyrkjuráðgjafi á vegum Kvenfélagasambands Suðurlands, Búnaðarsambands Suðurlands og Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Glaðlega leikur skugginn í sólskininu er fyrsta skáldsaga Steins.

Nýjar fréttir