4.4 C
Selfoss

Bogga kynnt fyrir unglingum

Vinsælast

Kynningarfundur fyrir unglingadeildina Boggu hjá Björgunarfélagi Árborgar verður haldinn miðvikudaginn 28. september kl. 19.30 í Björgunarmiðstöðinni við Árveg 1 á Selfossi. Allir unglingar fæddir 2006 og 2007 eru velkomnir í starfið og foreldrar eru hvattir til að koma með á kynningarfundinn.
Unglingastarfið felst í alls kyns mismunandi æfingum sem tengjast útivist, jeppum, fjallamennsku, fyrstu hjálp, siglingum o.fl. Fundir verða alla miðvikudaga í vetur kl. 19.30.

Nýjar fréttir