0 C
Selfoss

Hella römpuð upp

Vinsælast

Í síðustu viku voru á ferðinni starfsmenn á vegum Römpum upp Ísland á Hellu. Í þessari lotu voru rampar settir upp á fimm stöðum, þrír við Miðjuna og tveir við Stracta Hótel Hellu, með það að markmiði að auka aðgengi hreyfihamlaða að þjónustu, verslun og veitingahúsum á Íslandi.

Staðreyndin er sú að aðgengi á Íslandi er oft mjög takmarkandi fyrir hreyfihamlaða. Því er mikilvægt að koma upp römpum eða tryggja aðgengi með öðrum hætti. Ramparnir geta verið jafn misjafnir og þeir eru margir.

Rangárþing ytra þakkar kærlega fyrir framlag verkefnisins til þess að auka aðgengi hreyfihamlaðra á Hellu.

Rangárþing ytra

Nýjar fréttir