8.9 C
Selfoss

Frábær árangur hjá iðkendum UMFS

Vinsælast

Fimmta og síðasta umferð Íslandsmeistaramótsins í motocross fór fram í Bolaöldu þann 27. ágúst á vegum Vélhjólaklúbbsins VÍK í blíðaskaparveðri þar sem rúmlega 75 keppendur tóku þátt. Fjöldi iðkennda keppti fyrir hönd UMFS og komust nokkrir þeirra á pall. Eric Máni Guðmundsson tryggði sér Íslandsmeistaratitil með akstri sínum í unglingaflokki og lenti í fyrsta sæti í sínum flokki eftir daginn, Alexander Adam Kuc lenti í öðru sæti í MX2, Ragnheiður Brynjólfsdóttir lenti í þriðja sæti í kvennaflokki 30+, Ásta Petrea Hannesdóttir lenti í fjórða sæti í kvennaflokki.

Nýjar fréttir