1.1 C
Selfoss

Opið fyrir umsóknir í uppbyggingarsjóð Suðurlands

Vinsælast

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í haustúthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands árið 2022. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar og menningar á Suðurlandi. Í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á stuðningi ásamt nýsköpunarverkefnum sem efla fjölbreytileyka atvinnulífs. Í flokki menningar er markmið að verkefni efli menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi.

Uppbyggingarsjóður Suðurlands byggir á Sóknaráætlun Suðurlands 2020-2024. Umsækjendum er því bent á að kynna sér vel úthlutunarreglur sjóðsins, áherslur, markmið og mat á umsóknum sem eru aðgengilegar hér.

Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum umsóknarvef sjóðsins og eru umsækjendur hvattir til að hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð og leiðbeiningar við gerð umsókna. Umsóknir skulu berast fyrir kl. 16.00 þann 4. október 2022.

Nýjar fréttir