6.1 C
Selfoss

Bryndís tvíbætti Íslandsmet á héraðsmóti

Vinsælast

Héraðsmót HSK í frjálsíþróttum var haldið á Selfossvelli dagana 17. og 18. ágúst sl. og voru 56 keppendur frá sex félögum skráðir til leiks.

Selfyssingar höfðu mikla yfirburði í stigakepppni félaga og hlutu samtals 339 stig, sameignlegt lið Garps og Heklu varð í 2. sæti með 81 stig, Hrunamenn urðu í þriðja sæti með 30 stig, þá Þjótandi með 27 stig og Dímon hlaut 18 stig. Þá tóku tveir keppendur þátt frá FH sem gestir og voru því ekki með í stigakeppni félaga.

Í lok móts voru veitt sérverðlaun til stigahæstu keppenda mótsins. Stigahæst kvenna varð Ísold Assa Guðmundsdóttir Selfossi með 25 stig og stigahæsti karl varð Daníel Breki Elvarsson Selfossi með 26 stig. Hver keppandi gat tekið þátt í sex greinum til stiga og gefur fyrsta sætið sex stig, mest getur keppandi því fengið 36 stig.

Bryndís Embla Einarsdóttir Selfossi setti landsmet í spjótkasti í 13 ára flokki með 600 gr. spjóti á mótinu, en hún tvíbætti 10 ára gamalt met Höllu Maríu Magnúsdóttur. Bryndís kastaði fyrst 35,29 og svo 35,58 metra. Gamla metið var 33,63m. Þessi met eru að sjálfsögðu HSK met líka. Þessi árangur er einnig bæting á 42 ára gömlu HSK meti Hildar Harðardóttur í 14 ára flokki. Met Hildar var 34,02 metrar.

Héraðsmót fatlaðra í frjálsum fór fram samhliða héraðsmótinu og þar varð María Sigurjónsdóttir fjórfaldur HSK meistari í kastgreinum.

Nýjar fréttir