-0.6 C
Selfoss

Brekkusöngur í beinni á Brúartorgi á sunnudagskvöld

Vinsælast

Bein útsending frá Vestmannaeyjum á risaskjánum 

Það verður Þjóðhátíðarstemning í miðbænum á Selfossi á sunnudaginn, þegar dagskrá Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum verður sýnd á risaskjá frá kl. 20:00 og fram eftir kvöldi.

Sjálfur brekkusöngurinn hefst að vanda kl. 23:00 og það er Selfyssingurinn Magnús Kjartan sem heldur uppi fjörinu í Eyjum og á risaskjánum á Brúartorgi.

“Það erum með frábæra aðstöðu á torginu fyrir skemmtilegar uppákomur eins og þessa”, segir Vignir Guðjónsson, framkvæmdastjóri Sigtúns Þróunarfélags. “Við hvetjum bæjarbúa og gesti til að fjölmenna í “tröppusöng” á Brúartorgi og taka undir með brekkunni í Eyjum. Við sjáum hvernig gengur og hver veit nema þetta verði árlegur viðburður hjá okkur um verslunarmannahelgi”, segir hann.

Að sjálfsögðu verður opið á veitingastöðum og börum fram eftir kvöldi, markísur dregnar út og kveikt á hiturum.

Dagskráin hefst Sunnudaginn 31. júlí kl. 20:00 og stendur til miðnættis.

Bestu kveðjur

Elísabet Ósk

Random Image

Nýjar fréttir