-1.6 C
Selfoss

Strandblakvöllur lítur dagsins ljós á Selfossi

Vinsælast

„Við erum búin að snyrta allt íþróttasvæðið, setja gervigras á opin svæði og gera íþróttasvæðið tilbúið fyrir Unglingalandsmótið. Starfsfólk og forsvarsfólk sveitarfélagsins hefur staðið sig afar vel og vill alltaf gera betur,“ segir Ásgeir Hilmarsson hjá PRO-görðum.

Á milli 5-6 starfsmenn hafa síðustu daga unnið hörðum höndum að gerð vallar fyrir strandblak og strandhandbolta aftan við Selfosshöllina á íþróttavellinum. Svæðið er 55 x 30 metrar á lengdina og rúmar þrjá velli. Allt svæðið er umkringd 300 brettum og hafa tugir vörubílar flutt um 500 rúmmetra af sandi á svæðið. Sandurinn kemur frá Eyrarbakka, sem er á HSK-svæðinu.

Ásgeir var í vikunni á fullu að slétta úr sandinum ásamt þeim Evu Björk Kristjánsdóttur skrúðgarðyrkjufræðingi, konu sinni, og Nökkva Þór, syni þeirra.

Ásgeir segir verkinu fljótlega lokið. „Eftir helgina tyrfum við hliðarnar og setjum svo upp mörkin,“ sagði hann í síðustu viku.

Random Image

Nýjar fréttir