-0.6 C
Selfoss

Skúbb og Friðheimar í samstarf um ís

Vinsælast

Þrír nýir og frumlegir sorbet ísar hafa litið dagsins ljós í skemmtilegu samstarfi milli Friðheima og Skúbb ísgerðar.

Hugmyndin var að búa til framúrskarandi ís úr mörgum af þeim hráefnum sem Friðheimar rækta að sögn Einars Þórs Ingólfssonar matreiðslumeistara Skúbb. Eftir heimsókn Einars í Friðheima fóru hjólin að snúast. ,,Það mætti segja að eitt skemmtilegasta samstarfsverkefni sem Skúbb Ísgerð hefur tekið þátt í hafi byrjað þarna. Hjónin í Friðheimum, Knútur og Helena, rækta ekki einungis tómata, heldur einnig ýmislegt annað, eins og gúrkur, paprikur, kryddjurtir og salat, sem eru mikill fjársjóður fyrir matarunnendur. Þeirra vörur eru ræktaðar á umhverfisvænan hátt, án allra varnarefna og við bestu mögulegu skilyrði,“ segir Einar.

Skúbb býr til handgerðan ís frá grunni og notar aðeins lífræna mjólk frá Biobú. Lífræn hráefni við gerð íssins gerir bragðið ósvikið og ferskt.

„Þegar maður hefur aðgang að eins miklu úrvali af matvælum í þessum gæðaflokki, fara öll skynfæri á flug. Það er mjög skemmtilegt að þróa vöru svona, eiginlega í beinni. Svo er farið aftur í ísgerðina og leikið sér við að fullklára uppskrift að nýjum ístegundum með nýju hráefnunum,“ segir Einar.

Afrakstur samstarfsins, eins og áður kom fram, eru þrír sorbet ísar. Gúrku, myntu og lime. Rauðir tómatar og basil. Marineraðir grænir tómatar og rósmarín. Sorbet ísarnir verða eingöngu fáanlegir í Friðheimum, á eftirréttamatseðli og einnig í vinsælum drykk „Marry Poppins”. Upplifunin í Friðheimum er einstök, þegar fólk finnur ilminn af plöntunum í kring á veitingastaðnum á sama tíma og notið er bragðsins af ísnum.

Einn af ísréttunum glæsilegu, Gúrku, myntu og lime. Rauðir tómatar og basil. Marineraðir grænir tómatar og rósmarín.
Random Image

Nýjar fréttir