1.1 C
Selfoss

Afsteypa af Afrekshuga Nínu Sæmundsson tilbúin

Vinsælast

23. júní var stór dagur í sögu Afrekshuga þegar formaður félagsins, Friðrik Erlingsson, gekk til fundar við fullskapaða afsteypu af þessu fræga og fagra verki Nínu Sæmundsson, á verkstæði Skulpturstöberiet í Svendborg á Fjóni. Þau eru sannkallaðir listamenn, handverksfólkið hans Jörn Svendsen á Skulpturstöberiet, enda er bronsafsteypugerð flókið og margþætt verk og vandað verklag ekki á hvers manns færi.

Tveir af „feðrum“ Afrekshuga, Jörn Svendsen, eigandi Skulpturstöberiet, og Nils Jörgen Hansen, starfsmaður

Merkileg tilviljun

Að styttan hafi verið steypt í Svendborg er merkileg tilviljun því í bókinni um Nínu, eftir Hrafnhildi Schram, segir að Nína hafi verið hjá vinkonu sinni í Svendborg og gert þar fyrsta skúlptúrverk sitt, sem var brjóstmynd af litlu barni. Fyrir tilstilli þessa verks komst hún inn í undirbúningsnám fyrir Listaakademíuna í Kaupmannahöfn. Afsteypa Afrekshuga í Svendborg lokar því fagurlega hringnum í sögu Nínu.

Brjóstmynd af barni, fyrsti skúlptúr Nínu Sæmundsson, gerður í Svendborg 1915

Nú tekur við undirbúningur að gerð stöpuls og stéttar á miðbæjartúninu á Hvolsvelli. Þegar stöpullinn er tilbúin kemur styttan loks heim. Og þá verður áreiðanlega óhætt að halda svolitla hátíð.

 

Nýjar fréttir