12.8 C
Selfoss

Kæru Hvergerðingar

Vinsælast

Gleðilega kosningaviku og gleðilega hátíð. Við frambjóðendur höfum eftir fremsta megni reynt að koma málefnum okkar á framfæri síðastliðnar vikur og margir eru eflaust orðnir þreyttir á kosningaumfjöllun á meðan öðrum finnst ekki nóg af henni. Það er okkur hjartans mál að íbúar Hveragerðisbæjar kynni sér málefnin, fyrir hvað flokkarnir standa og hvernig staða mála er í Hveragerði. Eina sem við í Okkar Hveragerði biðjum um er að allir taki upplýsta ákvörðun, mæti á kjörstað og setji x við þann flokk sem þeir treysta best til að sinna þeim störfum sem sinna þarf.

Þótt sumum finnist pólitík leiðinleg þá er það einu sinni svo að pólitískar ákvarðanir hafa svo mikil áhrif á okkar daglega líf að það er ábyrgðarhluti að láta sig það engu eða litlu varða. Pólitík er heldur ekki trúarbrögð og þrátt fyrir að mamma og pabbi og jafnvel afi og amma hafi ákveðnar skoðanir er maður ekki skuldbundinn til þess að hafa sömu skoðun. Við erum jú spendýr og hættir oft til hjarðhegðunar, en það má skipta um skoðun og það má stíga út fyrir það norm sem við höfum vanist að vera í. Hreyfiafl breytinga og þróunar eru þeir sem hugsa út fyrir kassan og gera ekki alltaf það sama, og í kosningum eru það þeir sem kjósa ekki alltaf það sama.

Í Hveragerði eru tækifæri til vaxtar, við búum í fallegum bæ með auðlindir á heimsmælikvarða og dásamlega íbúa sem saman skapa góðan bæjarbrag. Hveragerði er ekkert án allra þessara íbúa sem gera bæinn að því sem hann er. Menningin og samfélagið sem við mótum er íbúunum að þakka. Stjórnsýslan er þar ekkert frábrugðin, við þurfum alla flóruna þar, við þurfum fjölbreytileika, nýliðun, ferska sýn og umfram allt fagleg vinnubrögð, skýra verkferla og vandaða stjórnsýslu.

Í sveitarstjórnarlögum er alveg skýrt að það er hlutverk bæjarstjórnar að taka ákvarðanir og reka bæjarfélagið. Hlutverk bæjarstjóra eða framkvæmdastjóra er að sjá til þess að tannhjólið virki, reglum og verkefnum sem bæjarstjórn setur sé framfylgt, en ekki að vera tannhjólið sjálft. Á lista Okkar Hveragerðis er góð blanda Hvergerðinga, sumir hafa alist hér upp, aðrir hafa sest hér að síðar á lífsleiðinni. Allir eiga það sameiginlegt að vilja búa hér og hjálpast að við að gera okkar ágæta bæ enn betri.

Við viljum móta skýra og metnaðarfulla framtíðarsýn fyrir Hveragerði okkar allra og við viljum hafa íbúa með í ráðum. Það er nefnilega þannig að mannauður er dýrmætasta auðlindin okkar. Þá auðlind verðum við að nýta betur, því góðar hugmyndir geta svo sannarlega komið úr öllum áttum.

Sandra Sigurðardóttir,
oddviti Okkar Hveragerðis

 

Nýjar fréttir