7.1 C
Selfoss

Bindandi samkomulag um nýjan miðbæ í Þorlákshöfn

Vinsælast

Fyrr í dag undirrituðu fulltrúar Sveitarfélagsins Ölfus og fulltrúar framkvæmdafélagsins Arnarhvols samkomulag um byggingu miðbæjar í Þorlákshöfn. Samkomulagið byggir á gildandi aðalskipulagi með áherslu á hvernig nýta má svæðið í kringum Selvogsbrautina til að skapa manneskjulegan og fallegan miðbæ.

Hinn nýji miðbær mun rýsa norðan Selvogsbrautar.  Hann mótast af 200 metra langri göngugötu þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu á skrifstofum, verslunum, þjónustu og íbúðabyggð auk nauðsynlegra opinna svæða og torga sem styðja við mannlíf og menningu. Þá stefna aðilar samkomulagsins að samvinnu um byggingu fjölnota menningarsalar í hinum nýja miðbæ sem ef af yrði myndi m.a. nýtast fyrir tónlistarviðburði og til sýninga á listmunum, ljósmyndum, safnamunum og fl.

Samkomulagið við Arnarhvol er með þeim hætti að Arnarhvoll skuldbindur sig til uppbyggingar hins nýja miðbæjar á grundvelli deiliskipulags sem aðilar vinna í sameiningu þannig að á svæðinu rísi eftirsóknarverð, hagkvæm og aðlaðandi byggð sem styrki Sveitarfélagið Ölfus í sessi sem eftirsóknarverðan búsetukost. Skýrt er tekið fram að skipulagsvaldið er eftir sem áður allt á hendi sveitarfélagsins eins og vera ber. Þá greiðir Arnarhvoll allan kostnað við framkvæmdina þar með allan kostnað við gatnagerð, götulýsingu, yfirborðsfrágang og fl.

Karl Þráinsson framkvæmdastjóri Arnarhvols:

„Þorlákshöfn hefur vaxið hratt á seinustu árum. Þar hefur mikil áhersla verið lögð á uppbyggingu atvinnulífsins og mörg lofandi verkefni sem þegar er byrjað að vinna að. Í samfélaginu er ríkur vilji til að standa vel að uppbyggingu og sterk vitund um mikilvægi þess að saman fari fjölgun íbúa og uppbygging á mannlífi, menningu og þjónustu. Arnarhvoll hefur metnað til að taka þátt í þessari uppbyggingu með íbúum og stjórnendum sveitarfélgsins.“

Elliði Vignsson, bæjarstjóri Ölfuss

„Í framhaldi af uppbyggjandi samtali milli sveitarfélagsins og Arnarhvols, um m.a. þá miklu uppbyggingu sem hér er að eiga sér stað lýsti Arnarhvoll áhuga sínum á að standa að metnaðarfullri uppbyggingu nýs miðbæjarkjarna í Þorlákshöfn. Við sem hér búum þekkjum vel hversu öflugt mannlífið í Þorlakshöfn er. Nýi miðbærinn okkar mun án vafa bjóða upp á umhverfi sem laðar til sín fólk, eykur þjónustustigið og eflir mannlíf og menningu. Ég er bjartsýnn á að við getum lokið hönnun og skipulagi á þessu svæði núna strax í haust og fljótlega út úr því geti framkvæmdir hafist.“

Nýjar fréttir