-0.5 C
Selfoss

Frístundir, fyrir öll börn!

Dagbjört Harðardóttir.

Sveitarfélagið Árborg hefur tekið þátt í verkefninu Heilsueflandi samfélag frá árinu 2019. Margt gott hefur verið gert, en betur má ef duga skal. Rannsóknir hafa sýnt að þátttaka barna í frístundum hefur mikið forvarna- og forspárgildi fyrir velgengni þeirra síðar á lífsleiðinni. Þess má geta að frístundir geta verið margvíslegar, þar með talið hvers konar íþróttir, tónlistariðkun og ýmislegt fleira. Það er því mikilvægt að við sem samfélag stuðlum að því með myndarlegum hætti, eins og gert er með frístundastyrk sveitarfélagsins.

Allir eiga  að sitja við sama borð

Það er okkur í Áfram Árborg mikið kappsmál að allir sitji við sama borð og hafi jöfn tækifæri. Með frístundastyrknum hafa fleiri tök á því að vera í hvers konar frístundum heldur en ef hann væri ekki til staðar. Það er samt sem áður áhugavert að velta fyrir sér hvers vegna frístundastyrkurinn er ekki veittur nema frá fimm ára aldri. Við erum því í raun að mismuna börnum vegna aldurs. Börn á aldrinum 0-4 ára hafa einfaldlega ekki sömu tækifæri til frístundaiðkunar og hin eldri. Það er afar mikilvægt fyrir félags- og hreyfiþroska barna að geta tekið þátt í frístundastarfi af einhverju tagi en mýmörg tækifæri eru til þess innan Árborgar hafi heimilið efni á því að senda börn sín á slík námskeið. Með því að veita öllum börnum frístundastyrk mætti auka þátttökuna og um leið greiða götu barnafjölskyldna til að taka þátt í einhverskonar frístundastarfi frá fæðingu barns.

Allt sem fylgir

Í þessu samhengi er einnig vert að nefna að frístundum fylgir meira en bara æfingagjöld. Það eru búningar, hljóðfæri, keppnisferðir og margt fleira sem frístundastyrkurinn hreinlega nær ekki yfir. Ef við viljum búa til samfélag sem allir hafa jöfn tækifæri er þetta mál sem þarf einnig að skoða alvarlega. Mögulega mætti leysa það með einhverskonar auka frístundastyrk til efnaminni heimila eða styrk til íþróttafélaganna sem væri eyrnamerktur til búningakaupa. Hvernig það yrði framkvæmt verður kannski ekki leyst hér og nú en það er umræðunnar virði og ljóst að þarna þarf að finna lausnir.

Framtíðin er núna

Við þurfum að hugsa til framtíðar. Það er ávinningur af því fyrir samfélagið að gefa börnum jöfn tækifæri og hugsa um hag barnafjölskyldna. Með því getum við mögulega komið í veg fyrir ýmis vandkvæði síðar. Það er mikilvægt að efla seiglu, styðja við félagslegan þroska og mikilvægast er að sýna það og sanna að öll eigum við sama réttinn til þátttöku í samfélaginu. Þess vegna teljum við í Áfram Árborg mikilvægt að byrja að veita frístundastyrk til barna um leið og þau fæðast og til 18 ára aldurs. Við sem samfélag eigum ekki að hindra leiðir að þátttöku heldur eigum við að efla þær.

Dagbjört Harðardóttir, forstöðukona
skipar 3. sæti Á listans Áfram Árborg.

Random Image

Nýjar fréttir