10 C
Selfoss

Sumri fagnað með Karlakór Selfoss – Vortónleikar 2022

Vinsælast

Það er vel hálfrar aldar gömul hefð fyrir vortónleikum Karlakórs Selfoss á sumardaginn fyrsta. Og nú, þegar hillir undir lok á vindasömum og erfiðum veiru-vetri, boða kórfélagar til tónleika í Selfoss-kirkju að kvöldi sumardagsins fyrsta, þann 21. apríl, kl. 20:00. 

Æfingar hafa vægast sagt gengið brösulega síðustu tvö ár þar sem veiruskrattinn hefur margoft sett okkur stólinn fyrir dyrnar – og þess vegna þurfti að aflýsa vortónleikunum 2020 og 2021. Og ekki horfði vel til æfinga í byrjun þessa starfsárs, því þótt veiran væri á undanhaldi, þá hamlaði veður æfingum viku eftir viku. En með þrautsegju og útsjónasemi stjórnanda og píanóleikara – og að sjálfsögðu forráðamanna kórsins, tókst að setja saman og æfa áhugaverða söngskrá sem Karlakór Selfoss ætlar að bjóða uppá í vor. Eins og undanfarin ár eru þeir Skarphéðinn Þór Hjartarson stjórnandi kósrins og Jón Bjarnason píanóleikari.

Ef gluggað er í söngskrá tónleikanna er þar að finna bæði gömul og ný lög og kórinn hefur sum þeirra flutt áður, en vert er að nefna að á söngskránni er dásamlegt þjóðlag frá Úkraínu við afar fallegan texta Guðmundar Guðmundssonar skólaskálds, sem heitir „Kvöldblíðan lognværa“.

Sem fyrr segir verða tóleikar haldnir í Selfosskirkju á sumardaginn fyrsta og síðan verða tónleikar nr. 2 haldnir í Selfoss-kirkju þriðjudaginn 26. apríl kl. 20:00 og lokatónleikar laugardaginn 30. apríl í Skálholtsdómkirkju kl. 17:00. Aðgöngumiðaverð er kr. 3000.

Nýjar fréttir