1.7 C
Selfoss

Umsækjendur um embætti skólameistara Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu

Vinsælast

Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsti laust til umsóknar embætti skólameistara Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu.

Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu er um 150 nemenda skóli sem var stofnaður árið 1987 og er staðsettur í Höfn í Hornarfirði. Í skólanum er lögð áhersla á að þjóna þörfum nemenda á persónulegan hátt með sveigjanlegu námsframboði. Fjarnám og tölvutengt nám er mikilvægur hluti náms við skólann.

Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust fimm umsóknir um embætti skólameistara Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu.

Umsækjendur eru:

  • Ingileif S. Kristjánsdóttir, kennari
  • Jhordan Valencia Sandoval, öryggisvörður
  • Lárus Páll Pálsson, framkvæmdastjóri
  • Lind Draumland Völundardóttir, kennari

Einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.
Umsóknarfrestur rann út 22. mars 2022. Skipað er í embættið til fimm ára í senn.

 

Fréttatilkynning frá Stjórnarráðinu.

Nýjar fréttir