4.9 C
Selfoss

Hamar bikarmeistarar í stökkfimi

Vinsælast

Um liðna helgi, 11.-13. mars, var Bikarmótið í stökkfimi og hópfimleikum haldið í HK höllinni í Digranesi. Að þessu sinni sendi Fimleikadeild Hamars lið í 4. og 5. flokki. Um var að ræða frumraun beggja flokka á móti en gríðarleg ánægja er innan deildarinnar með að fara aftur af stað með keppnishópa í hópfimleikum eftir langa hvíld.

Stúlkurnar í 5. flokki kepptu á laugardeginum í hópfimleikum, þá kepptu þær í dansi, trampólíni og æfingum á dýnu. Þær stóðu sig með stakri prýði, enduðu í 10. sæti og fengu sérstakt hrós fyrir frammistöðu í dansi.

Stúlkurnar úr 4. flokki kepptu á sunnudeginum í sömu æfingum en þær kepptu í stökkfimi. Þær sýndu frábæra frammistöðu í öllum æfingum og uppskáru sigur á öllum áhöldum. Hamar á því bikarmeistara í stökkfimi í 4. flokki, sem verður að teljast frábær árangur.

Þessar hæfileikaríku og þrautseigu stelpur hafa þurft að æfa við misgóðar aðstæður síðustu ár þar sem mikil hitavandamál voru í Hamarshöllinni áður en hún eyðilagðist í óveðri þann 22. febrúar síðastliðinn. Þá má ekki gleyma þjálfurunum okkar sem hafa sýnt ótrúlegan dugnað, útsjónarsemi og sveigjanleika í krefjandi aðstæðum án þess að gleyma gleðinni.

Við í stjórn Fimleikadeildar Hamars viljum senda sérstakar þakkir til þjálfara og stjórnar Fimleikadeildar Þórs í Þorlákshöfn. Þjálfurum okkar og iðkendum var þar strax tekið opnum örmum þegar við misstum aðstöðu og áhöld fyrirvaralaust. Stúlkurnar sækja nú æfingar í Þorlákshöfn þrisvar sinnum í viku í glæsilegu fimleikahúsi Þorlákshafnar.

Það er óhætt að segja að framtíðin sé björt hjá Fimleikadeild Hamars þar sem gleði og dugnaður er hafður að leiðarljósi í öllu starfi.

Fréttatilkynning frá Fimleikadeild Hamars

5. flokkur

Nýjar fréttir