3.9 C
Selfoss

Íslandsmót í blaki á Hvolsvelli og Hellu

Vinsælast

Helgina 26.-27. febrúar hélt blakdeild Dímonar-Heklu í samvinnu við Blaksambandi Íslands. Íslandsmót kvenna í blaki 2. umferð. Dímon-Hekla er með lið í 3. deild og var hún spiluð á Hellu og endaði liðið í 3. sæti. Úrslitakeppnin verður svo spiluð á Siglufirði helgina 26 – 27. mars.

Dímon-Hekla er líka með lið í 4. deild og var hún spiluð á Hvolsvelli og endaði liðið í 7. sæti og verður úrslitakeppnin spiluð á Akureyri sömu helgi. Í hvorri deild eru 12 lið það má því segja að það hafi verið líf og fjör í íþróttahúsunum þessa helgi í Rangárþingi en alls voru spilaðir 54 leikir.

Nýjar fréttir