4.4 C
Selfoss

Ægir samþykkir framboðslista sinn

Vinsælast

Sjálfstæðisfélagið Ægir hefur samþykkt framboðslista Sjálfstæðisflokks, D-listans fyrir komandi sveitastjórnarkosningar í Sveitarfélaginu Ölfusi þann 14. maí næstkomandi.

Á listanum er fjölbreyttur hópur fólks með víðtæka þekkingu og reynslu úr ólíkum áttum. Mikil endurnýjun er á listanum en einnig er þar að finna reynslumikla einstaklinga á sviði sveitarstjórnarmála sem hafa komið að ábyrgri stjórnun þess seinustu árin.

Á listanum eru frambjóðendur bæði úr Þorlákshöfn og dreifbýli Ölfuss. Margir eru fæddir og uppaldir í sveitarfélaginu en einnig eru í framboði einstaklingar sem flutt hafa í sveitarfélagið á síðustu árum.

Framboðslistinn verður sem hér segir:
Gestur Þór Kristjánsson, 49 ára, húsasmíðameistari og forseti bæjarstjórnar
Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir, 29 ára, bóndi og viðskiptafræðingur
Grétar Ingi Erlendsson, 38 ára, sölu- og markaðsstjóri og formaður bæjarráðs
Erla Sif Markúsdóttir, 33 ára, grunnskólakennari í Grunnskólanum í Þorlákshöfn
Guðlaug Einarsdóttir, 45 ára, grunnskólakennari í Grunnskólanum í Þorlákshöfn
Geir Höskuldsson, 31 árs, byggingaiðnfræðingur
Davíð Arnar Ágústsson, 25 ára, kennaranemi og körfuknattleiksleikmaður
Margrét Polly Hansen Hauksdóttir, 40 ára, hótelstjórnandi og frumkvöðull
Sigríður Vilhjálmsdóttir, 38 ára, lögfræðingur og formaður fræðslunefndar
Hjörtur Sigurður Ragnarsson, 33 ára, sjúkraþjálfari
Bettý Grímsdóttir, 48 ára, hjúkrunarfræðingur
Oskar Rybinski, 19 ára, nemi og starfsmaður í félagsmiðstöð
Steinar Lúðvíksson, 38 ára, sérfræðingur hjá Landsvirkjun
Anna Lúthersdóttir, 79 ára, heldri borgari

Bæjarstjóraefni flokksins verður Elliði Vignisson.

D-listinn hefur nú skipað meirihluta í hart nær fjögur ár. Undir hans stjórn hefur Sveitarfélagið Ölfus vaxið og dafnað. Velferð íbúa ásamt uppbyggingu í innviðum með áherslu á atvinnumál hafa verið í forgangi. Umfjöllun um sveitarfélagið hefur verið mikil og má með sanni segja að það hafi verið á allra vörum vegna þess krafts sem þar er að finna. Aldrei hafa verið fleiri íbúar, mikill kraftur er í byggingum bæði íbúðarhúsnæðis og iðnaðarhúsnæðis, höfnin er að stækka mikið, atvinnutækifærum að fjölga og þjónusta hefur verið aukin með áherslu á börn, fjölskyldur og eldri borgara. Íbúar vita því fyrir hvað D-listinn stendur og fái frambjóðendur til þess umboð munu þeir stíga en fastar fram í sókn fyrir samfélagið.

Á næstu vikum verður listinn kynntur nánar auk þess sem opnir málefnafundir verða haldnir þar sem öllum íbúum sveitarfélagsins gefst kostur á að koma hugmyndum sínum á framfæri.

Nýjar fréttir