6.7 C
Selfoss

Sveitarstjórn mótmælir lokun pósthúss

Vinsælast

Nú fyrr í mánuðinum tilkynnti Íslandspóstur ohf að breytingar á póstþjónustu séu í farvatninu í Rangárþingi ytra. Loka eigi pósthúsinu á Hellu og póstbílar, pósthólf og heimsendingar verði þjónustuform Póstsins frá og með 1. maí nk. Í kjölfar fregna af þessu hafa fulltrúar sveitarstjórnar Rangárþing ytra fundað með yfirstjórn Íslandspósts ohf og þingmönnum suðurkjördæmis. Þar hefur sveitarstjórn ítrekað bókun sína frá síðasta sveitarstjórnarfundi:

„Sveitarstjórn Rangárþings ytra mótmælir harðlega fyrirhugaðri lokun pósthúss á Hellu og krefst þess að ríkisfyrirtækið Íslandspóstur ohf dragi þessar fyrirætlanir til baka. Sjálfsafgreiðsla með pósthólfum og heimsendingum er auðvitað í takt við tímann og getur verið ágæt þjónusta út af fyrir sig en pósthús er áfram mikilvæg lífæð almennrar þjónustu í hverju samfélagi. Við mótmælum einnig kröftuglega að störf séu færð til og að eina tilboð Íslandspósts ohf til núverandi starfsfólks pósthússins hér sé boð um að sækja vinnu í næstu byggðalög. Störf án staðsetningar hljóta að koma til greina til eflingar starfsstöðvar Póstsins hér á Hellu auk þess sem póstbílar sem nú eiga að taka að stærstum hluta við hlutverki pósthúss hljóta að geta átt sína heimastöð hér í stað þess að gera ávallt út frá dreifingarmiðstöð í næsta byggðarlagi. Sveitarstjórn Rangárþings ytra hvetur forsvarsfólk Póstsins eindregið til að endurmeta þessa ákvörðun.“

Bókunin þessi var send stjórn Íslandspósts ohf, þingmönnum kjördæmisins og Byggðastofnun sem er eftirlitsaðili með þjónustu fyrirtækisins.

-Rangárþing ytra

Nýjar fréttir