-0.5 C
Selfoss

Flest frístundahús í Grímsnes- og Grafningshreppi 2021

Vinsælast

Frístundahúsum í Grímsnes- og Grafningshreppi hefur verið að fjölga talsvert undanfarin ár og er stærsta frístundahúsabyggðin á Íslandi staðsett í hreppnum. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands voru 3.179 frístundahús í sveitarfélaginu árið 2021. Fyrir 10 árum síðan voru þau 2.702 frístundahús.

Næst stærsta frístundahúsabyggðin á landinu er í Bláskógabyggð en þar voru 2.114 frístundahús árið 2021. Þriðja stærsta frístundahúsabyggðin á landinu er í Borgarbyggð en þar voru 1.512 frístundahús árið 2021.

Fjöldi frístundahúsa á Íslandi 2021
Suðurland: 7.666
Vesturland: 3.060
Höfuðborgarsvæðið: 1.187
Norðurland eystra: 1.177
Vestfirðir: 650
Norðurland vestra: 473
Austurland: 398
Suðurnes: 89
Samtals 14.700 frístundahús

Af vef Grímsnes- og Grafningshrepps,
www.gogg.is

Nýjar fréttir