7.3 C
Selfoss

Hreiðrið – Nýtt frumkvöðlasetur í Fjölheimum

Vinsælast

Háskólafélag Suðurlands og Sveitarfélagið Árborg hafa gert með sér samning um að starfrækja frumkvöðlasetur sem fengið hefur nafnið Hreiðrið og verður staðsett í Fjölheimum á Selfossi.

Hreiðrinu er ætlað að efla þekkingu og vitund frumkvöðla á Suðurlandi á sviði nýsköpunar, vöruþróunar og markaðsmála svo að til verði vel skilgreind og mótuð verkefni meðal þeirra til frekari fjármögnunar, m.a. hjá Uppbyggingarsjóði Suðurlands og öðrum sjóðum. Þar með má gera ráð fyrir betri umsóknum til Uppbyggingarsjóðs og frá Suðurlandi í aðra samkeppnissjóði. Markmiðið er að til verði nýjar vörur og/eða þjónusta hjá frumkvöðlum á Suðurlandi.

Hreiðrinu verður stýrt og það rekið af Háskólafélaginu en samstarf um handleiðslu við frumkvöðla verður við ráðgjafa á vegum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga/SASS, FabLab Selfoss og Atorku auk annarra úr sunnlensku samfélagi, sem áhuga hafa á þátttöku í verkefninu.

Liður í verkefninu er leiðaraþjálfun fyrir frumkvöðlaráðgjafa en Háskólafélagið fékk styrk úr Lóu nýsköpunarsjóði landbyggðarinnar til þess að standa fyrir vinnustofum í leiðaraþjálfun fyrir ráðgjafa sem koma að handleiðslu við frumkvöðla. Fyrsta vinnustofan var haldin 7. desember sl. og er það í höndum Svövu Bjarkar Ólafsdóttur hjá ráðgjafafyrirtækinu RATA að leiða vinnustofurnar.

Gert er ráð fyrir að bjóða fyrstu frumkvöðlana velkomna í Hreiðrið strax á nýju ári.

Nýjar fréttir