-0.9 C
Selfoss

Íslenskunámskeið fyrir foreldra barna

Vinsælast

Dagana 19. október til 18. nóvember 2021 var haldið hagnýtt íslenskunámskeið fyrir foreldra barna með fjölmenningarlegan bakgrunn á grunnskólaaldri. Um var að ræða þróunarverkefni hjá Fjölskyldusviði Árborgar styrkt af Íslenskusjóðnum í Háskóla Íslands.

Markmið verkefnisins var að bjóða foreldrum grunnskólanema með fjölmenningarlegan bakgrunn í Sveitarfélaginu Árborg á ókeypis íslenskunámskeið þar sem þeir munu kynnast helstu hugtökum og efla orðaforða sem tengist skólastarfi, en rannsóknir sýna að tungumálaörðugleikar geta hindrað þátttöku foreldra í skólastarfi. Tilgangur verkefnisins var að efla vald og notkun á íslensku máli foreldra fjöltyngdra barna og styðja þannig við íslenskunám þeirra, en Aðalnámskrá grunnskóla (2013) gerir ráð fyrir að foreldrar séu virkir þátttakendur í skólasamfélaginu í samvinnu við skólastjórnendur, kennara og aðra starfsmenn skóla.

Kennt var tvö kvöld í viku í fimm vikur, samtals 20 kennslustundir. Námskeiðið fór fram í Vallaskóla á Selfossi. Kennari námskeiðsins var Anna Linda Sigurðardóttir. Hún hefur margra ára reynslu af kennslu íslensku sem annars máls og starfar sem deildarstjóri fjölmenningardeildar í Vallaskóla.

Að kennslunni komu einnig Aneta Figlarska, kennsluráðgjafi í fjölmenningu og Anna Katarzyna Wozniczka, verkefnastjóri í málefnum flóttamanna.

Boðið var upp á fjölþætta fræðslu, en notast var við Mentor, aðalvefsíðu Árborgar og Fjölmenningarsíðu Árborgar. Viðfangsefni námskeiðsins var m.a. skólakerfi á Íslandi, starfsemi Fjölskyldusviðs, skráning nemenda í frístundir, virkt fjöltyngi, skólaorðaforði, mentor o.fl. Þá voru nemendur einnig fræddir um millimenningu en um fræðsluna sá gestakennarinn Nichole Leigh Mosty, forstöðukona Fjölmenningarseturs.

Boðið var uppá gæslu fyrir börn þátttakenda á meðan á námskeiðinu stóð, í formi leikja og samræðna, í samstarfi við Rauða Krossinn. Safnað var upplýsingum um íslenskukunnáttu foreldra og viðhorf þeirra til námskeiðsins í upphafi og lok verkefnisins, en verkefnið verður kynnt á Menntakviku 2022 sem og á fræðslufundum víðar í skólasamfélaginu og í fjölmiðlum.

Reynslan sem við tökum með okkur eftir námskeiðið er að nemendahópurinn er fjölbreyttur hvað varðar bakgrunn og móðurmál. Þarfir þeirra eru ólíkar og margt í sambandi við t.d. skráningar í frístundir sem þeir þekktu ekki fyrir. Þá þurfa þeir aðstoð við ýmislegt fleira sem tengist ekki skólamálum beint. Námskeiðið var heldur stutt miðað við umfangið en nemendur fengu engu að síður gott rými til tjáninga og spurninga og virtust örugg. COVID-19 hafði vissulega áhrif á þátttökuna en allir nemendur voru mjög áhugasamir og kalla eftir framhaldi.

Random Image

Nýjar fréttir