3.9 C
Selfoss

Kristjana Stefáns er næsti gestur Tómasar

Vinsælast

Hljómborðsleikarinn Tómas Jónsson hefur verið að telja niður í jólin með tónleikaröð á aðventunni þar sem hann fær til sín góða gesti sem allt er stórkostlegt tónlistarfólk. Hann er nú hálfnaður sem þýðir að það styttist í jólin en síðustu helgar komu Bríet og tónlistarmaðurinn og þjóðargersemin KK til Þorlákshafnar og héldu stórskemmtilega tónleika.

Sunnudaginn 12. desember kl. 16 er það Kristjana Stefáns sem syngur með Tómasi af sinni alkunnu snilld og síðastur er Júníus Meyvant sem lætur ljós sitt skína 19. desember. Miðaverð er 3500 kr. og miðasala er á tix.is.

Nýjar fréttir