3.9 C
Selfoss

Ungmannafélagið Katla fær höfðingjalega gjöf

Vinsælast

Kvenfélagið Ljósbrá færði Ungmennafélaginu Kötlu, Vík í Mýrdal höfðinglega gjöf. Það voru 20 badmingtonspaðar sem eru ætlaðir fyrir yngstu iðkendurna. Barnaspaðarnir eru minni og styttri en fullorðinsspaðarnir. Þessi rausnarlega gjöf mun án efa nýtast vel, þetta mun hjálpa börnunum að ná betra valdi á spöðunum og þar með efla sjálfstraust þeirra gagnvart íþróttagreininni. Vert er að geta þess að badmington er mikið stundað af fullorðnum í Vík en þar eru æfingar þrjú kvöld í viku. Því má segja að nú sé verið að efla yngstu kynslóðina í að halda þeim mikla badmington áhuga við.

Nýjar fréttir