4.9 C
Selfoss

Sýningin Skyrland opnuð í miðbænum á Selfossi

Vinsælast

Skyrland, ný upplifunarsýning um skyr og matarmenningu Íslands, var opnuð í Mjólkurbúinu í miðbæ Selfoss sl. föstudag.

Á sýningunni reynir á öll skilningarvit gesta – sjón, heyrn, snertingu, ilm og bragð – með frumlegri hönnun fjölbreyttra atriða sem meðal annars fjalla um Auðhumlu, íslenska sumarið, mjólkurvinnslu kvenna, kynslóð eftir kynslóð, í torfbæjum liðinna alda, mjólkurbúin og margt fleira. Skyrið, þessi  afurð íslenskrar menningar og náttúru, hefur nú slegið í gegn víða um heim og í Skyrlandi er saga þess rakin.

Sýningin hefur verið í undirbúningi í þrjú ár en aðalhönnuður hennar er Snorri Freyr Hilmarsson, leikmynda- og sýningahönnuður. Skyrland er í eigu Skyrheima, félags sem Mjólkursamsalan og Sigtún Þróunarfélag stofnuðu utan um verkefnið.

„Stefna MS er sú að koma því enn betur á framfæri að Ísland er upprunaland skyrsins og þegar þessi hugmynd kom upp, að skapa skyrinu heimili í endurbyggðu fyrsta Mjólkurbúinu á Selfossi, þá vildum við taka þátt í því,“ segir Pálmi Vilhjálmsson, forstjóri MS.

Saga Selfoss er nátengd skyrgerð og mjólkuriðnaði á Íslandi. Fljótlega eftir stofnun Mjólkurbús Flóamanna og byggingu gamla mjólkurbúsins 1929 hófst fyrir alvöru iðnaðarframleiðsla ýmissa mjólkurafurða hér á landi og þar á meðal skyrsins. Staðsetning mjólkurbúsins skammt frá Ölfusárbrú dró til sín fjölda starfsmanna sem voru meðal frumbyggja hins nýja bæjar sem stækkaði hratt í kjölfarið.

“Með þessari metnaðarfullu og skemmtilegu sýningu hér í hjarta Selfoss verður til nýr áfangastaður fyrir alla þá fjölmörgu ferðamenn, íslenska og erlenda, sem eiga leið um bæinn”, segir Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Árborgar. “Skyrland er ákveðin undirstaða í þessu fallega matarmenningarhúsi sem Mjólkurbúið er orðið og með því er að rætast gamall draumur heimamanna um sýningu sem heiðrar sögu og hlutverk staðarins”.

Út októbermánuð er gestum Skyrlands boðið upp á sérstakt opnunartilboð.

Nánari upplýsingar um Skyrland veitir Elísabet Ósk Guðlaugsdóttir, s: 666 0010

Nýjar fréttir