10 C
Selfoss

Heilmikill kraftur í vélvirkjadeild FSu

Vinsælast

Sveinspróf í vélvirkjun var haldið í FSu dagana 10. til 12. september. Fimm nemendur þreyttu prófið sem skiptist í fjóra hluta. Fyrst var tekið tveggja tíma skriflegt próf úr öllu námsefni síðustu þriggja ára með fjölbreyttum spurningum þar á meðal um burðarþol stáls og um réttindi og skyldur á vinnustað. Þá var hafist handa við smíðina og unnið í rennibekk og fræsara. Að lokum voru tekin suðupróf, bilanagreiningarpróf á stórri díselvél og framkvæmdar slitmælingar á vélum.

Þá var á dögunum tekin í notkun smiðja eða það sem kallað er AFL og er það í fyrsta skiptið svo vitað sé að nemendur fá að hita stál í afli hér í skólanum. Mæltist þetta vel fyrir að sögn Borgþórs Helgasonar fag-stjóra málmiðngreina og verður aflið keyrt í gang á næstu önnum sem kynning á gömlu handbragði. Svo gerðist sá merki atburður á síðustu vorönn að Títaníum var rennt í fyrsta skipti hér í FSu. Títaníum er mög dýrt efni og fékkst þessi öxulbútur sem gjöf frá stoðtækjafyrirtækinu Össuri. Títaníum er notað við smíði á gerviliðum í fólk. Hjá Össuri starfa vélvirkjar og rennismiðir við smíði stoðtækja á sambærilegar vélar og eru í FSu. Þá gerðist það líka á vormánuðum að stór díselvél 28L Cummins var gangsett en hún er gjöf frá velunnurum skólans.

Önnur og sérlega glæsileg gjöf barst vélvirkjadeild FSu nú á dögunum frá fyrirtækjunum Össuri og Formúla 1. Um er að ræða öxla úr áli, stáli og plasti sem nýtast við kennslu í rennismíði og CNC-kennslu. Einnig fengust að gjöf stálhaldari og renniplatti fyrir rennibekkina, fræsitennur, miðjuborar og fleira. Að sögn Borgþórs er þessi gjöf „gríðarlegur stuðningur fyrir vélvirkjadeild skólans en um er að ræða öxla og verkfæri í hæsta gæðaflokki. Stálhaldararnir komu frá Steingrími í Formúla 1 ehf. og heita Kennametal en Formúla 1 er helsti innflutningsaðili á verkfærum fyrir rennismíði og CNC-vinnslu á Íslandi.“

Öflugt samstarf hefur verið milli rafvirkjadeildar FSu, vélvirkjadeildar og Fablab við smíði á prentplötum og undirstöðum fyrir Ardoino smátölvur. Voru notaðir CNC-tæki bæði í Fablab og vélvirkjadeild til þess að útbúa þessa hluti. Þetta er í fyrsta skiptið sem CNC-tæknin er notuð til þess að búa til prentplötur og leysir hún gamla tækni af hólmi. Þá skal að lokum nefna nýstárlega aðferð við kennslu í burðarþoli sem felst í notkun á þrívíddarteikniforritinu Inventor.

-jöz

Nýjar fréttir