8.4 C
Selfoss

Katrín Halldóra og Valdimar á jólatónleikum í Þorlákshöfn

Vinsælast

Aðventan hefst með miklum glæsibrag í Þorlákshöfn þegar Lúðrasveit Þorlákshafnar heldur jólatónleika sína í íþróttahúsinu laugardaginn 27. nóvember.

Katrín Halldóra, sem stimplaði sig rækilega inn í hjörtu landsmanna í hlutverki Ellýjar í Borgarleikhúsinu syngur með Lúðrasveitinni og einnig hinn margkrýndi söngvari ársins Valdimar Guðmundsson. Þau sjá líka um að kynna á milli laga og ljá viðstöddum þannig ekki aðeins sínar undurfögru raddir heldur einnig kímnigáfu sem þau eiga víst talsvert af bæði tvö.

Nú er hafin forsala sem stendur yfir fram á mánudaginn 25. október en þá er miðinn á 4900 kr. en almennt miðaverð er 5500 kr. Hér er sérstakur forsölulinkur: https://tix.is/is/specialoffer/gjitbgulh67z2/

Eins og þau þekkja sem hafa farið á stórtónleika hjá Lúðrasveit Þorlákshafnar áður þá verður hvergi sparað í umgjörð og glæsileika og því alveg víst að hinn eini sanni og margumtalaði jólaandi verði allt um lykjandi og aldrei að vita nema hann fari heim með öllum viðstöddum.

Nýjar fréttir