7.1 C
Selfoss

Framfarabikar Frískrar Flóamanna afhentur að loknu hlaupi

Vinsælast

Hið árlega Fríska Sólheimahlaup fór fram í blíðskaparveðri, sunnudaginn 10. október sl.  Félagar úr hlaupahópnum Frískum Flóamönnum á Selfossi hittu íbúa á Sólheimum við Minni Borg í Grímsnesi og þaðan var hlaupið, hjólað eða gengið að Sólheimum.  Þegar allir þátttakendur höfðu skilað sér í mark var athöfn á Grænu könnunni þar sem framfarabikar Frískra Flóamanna var afhentur en hann hlýtur sá íbúi á Sólheimum sem hefur sýnt mestar framfarir, góða ástundun í íþróttum eða almennri hreyfingu og hefur verið hvetjandi og fyrirmynd fyrir aðra íbúa.  Sá sem hlaut bikarinn að þessu sinni er Guðjón Gísli Kristinson og er hann mjög vel að honum kominn.  Eftir athöfnina var boðið upp á hressingu sem var kærkomin fyrir þreytta og þyrsta þátttakendur.  Þökkum vinum okkar á Sólheimum fyrir samveruna og góðar móttökur á þessum fallega haustdegi í fögru umhverfi.   Frískir Flóamenn.

Nýjar fréttir