7.8 C
Selfoss

12 sporin – Andlegt ferðalag

Vinsælast

Selfosskirkja býður upp á sjálfstyrkingarprógrammið 12. sporin –Andlegt ferðalag.

Vinir í bata, munu leiða starfið og er fyrsti kynningarfundur mánudaginn 11. október og verða vikulegir fundir í vetur á mánudögum frá kl. 18:00-20:00.  Fyrstu fjórir fundirnir eru opnir kynningarfundir en eftir þá verður hópunum lokað og ekki hægt að koma inn í starfið eftir það.
Vinir í bata er hópur fólks sem hefur farið sjálft í gegnum prógrammið og tileinka sér Tólf sporin sem lífstíl og hefur það að markmiði að gefa öðrum kost á því að kynnast þessu prógrammi. Þetta starf hefur gefið mörgum mjög mikið og orðið fólki til blessunar. Tólf spora vinna hentar öllum þeim sem í einlægni vilja vinna með tilfinningar sínar í þeim tilgangi að öðlast betri líðan og meiri lífsfyllingu þar sem leitað er styrks í kristinni trú.  Starfið er þáttakendum að kostnaðarlausu.
Frekari upplýsingar veita prestar Selfosskirkju.

Vinir í bata (VIB) eru með heimasíðu, viniribata.is, þar er hægt að nálgast frekari upplýsingar um 12.sporin –Andlegt ferðalag.

 

 

Nýjar fréttir