7.8 C
Selfoss

Laufey Guðmundsdóttir nýr formaður FKA Suðurlandi

Vinsælast

Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA, er öflugt tengslanet kvenna úr öllum greinum atvinnulífsins. Félagið er hreyfiafl sem eflir fjölbreytileika atvinnulífsins, styður kvenleiðtoga í að sækja fram og sameinar konur til aukins sýnileika og þátttöku um land allt. 

Hreystivöllur fyrir konur á Suðurlandi

FKA Suðurland er deild innan samtakanna sem er hreystivöllur fyrir konur á Suðurlandi sem vilja stórefla tengslanetið, styrkja sig og hafa áhrif í íslensku atvinnulífi. „Ég hlakka mikið til að fá að takast á við þetta skemmtilega hlutverk og hvet konur til að koma með,“ segir Laufey Guðmundsdóttir sem var kjörin formaður FKA Suðurlands í gær. „Í gær afhenti Auður Ingibjörg Ottesen ritstjóri og eigandi tímaritsins Sumarhúsið og garðurinn keflið yfir til mín. Hún hefur gert stórkostlega hluti fyrir deildina sem formaður og í okkar huga Orkubú Suðurlands,“ bætir Laufey Guðmundsdóttir við.

Einnig var kosin ný stjórn hjá FKA Suðurlandi. Þær eru Herdís Friðriksdóttir hjá Understand Iceland og Skálholti, Hrönn Vilhelmsdóttir, Hlöðueldhúsið, Þykkvabæ, Íris Tinna Margrétardóttir, Ísbúðin okkar, Hveragerði, Jessi Kingan, Rauða húsið, Eyrarbakka, Margrét Ingþórsdóttir, Mundakot bókhaldsstofa og Svanhildur Jónsdóttir, atvinnu- og virknimiðlun hjá Reykjavíkurborg. Stjórn mun við fyrsta tækifæri hittast á fyrsta stjórnarfundi og skipta með sér verkum, ritari, gjaldkeri, samskiptafulltrúi, meðstjórnandi og varamenn.

Kröftugt starfsár á Suðurlandi sem hefst með haustferð FKA á Suðurlandið

Það er kröftugt starfsár, fullt af tækifærum, sem nú er hafið hjá Félagi kvenna í atvinnulífinu. Næst á dagskrá hjá FKA Suðurlandi er að taka á móti Atvinnurekendadeild FKA sem fer í spennandi haustferð um Suðurlandið dagana 8.-10. október. „Hvet konur til að skrá sig í þá ferð og tryggja sér sæti en það er margt annað framundan. Samtalið við hinar landsbyggðardeildirnar heldur áfram að gefa en það samstarf hófst formlega í fyrra þegar við skipulögðum frábæra landsbyggðaráðstefnu. Við komum til með að halda því áfram,“ segir Laufey að lokum.

Hægt er að sækja um aðild á forsíðu heimasíðu Félags kvenna í atvinnulífinu á www.fka.is.

Nýjar fréttir